Á ÞETTA VIÐ ÞIG.??? VONANDI EKKI.

Á þetta við þig.??? Mér fannst alveg ótrúlegt að lesa svona nákvæma lýsingu á degi í lífi mínu en var samt alveg ótrúlega ánægð með að fleiri þjáðust af þessu sama........Ég sendi ykkur þetta og bið ykkur að hafa það í huga þegar þið undrið ykkur á því hvað ég hef sjaldan samband - ég er full af vilja en það verður því miður minna úr verki!!Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega hefur fundist greining á,en engin lækning við, enn sem komið er.Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp: Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum,en tók þá eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna.Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn.Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því reikninggana sem höfðu borist,frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið,en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga fyrst ég yrði við bílinn hvort eða er.Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki,ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst.Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt.Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri haldið.Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst,svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn "Sex in the City".Á leið í sjónvarpholið rakst ég á handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti.Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr um morguninn.Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína.....ef ég finn hana.Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera!!! Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana,ekki svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni,bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu.Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið fullu allan daginn í ýmsum snúningum.Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér hjálpar við.Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention Deficit Disorder", á íslensku "Aldurstengdur. HA HA HA HE HE HE HA.LoL

FORLÖGIN Í KAFFIBOLLANUM.EFTIR SOPHIA.Tounge HA HA HA HE.

SÍTRÓNUR. Öfundssýki út í aðra,einkum fólk sem virðist vegna betur en þér - jafnvel þótt þú þekkir það ekki neitt.Í botni bollans:Þú berð þig oft saman við fólk sem þú þekkir ekki og furðar þig á að því skuli vegna svona vel.Ég sá þetta tákn í bolla konu sem bar sig stöðugt saman við frægt sjónvarpsfólk.Ekki nóg með að hún væri hjáróma þegar hún talaði um það heldur virtist hún líka verða mjög óhamingjusöm.Um miðbik bollans:Þú laðar til þín fólk sem ergir þig.Slepptu allri smámunasemi.Á barmi bollans:Hættu að bera þig saman við aðra,allir eiga við vandamál að etja.Hvers vegna að gera úlfald úr mýflugu??. HA HA HA HE.Smile

Gerðu þér grein fyrir því að þú þarft alltaf að horfast í augu við einhvern fórnarkostnað,allt þitt líf.Veldu því af kostgæfni.Veldu líka að lenda ekki í hlutverki fórnarlambsins.Skoðaðu hverja stöðu sem upp kemur og veldu svo jákvæðasta kostinn.Ekki hika.GERÐU ÞAÐ BARA!Wink

ÉG VEL AÐ FYLLA LÍF MITT KÆRLEIKA,GLEÐI OG LJÓSI.Cool

Í dag hækkaði verð á steypu án sements."Ha HA HA.Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll vert þú! Jóhannes á fóðurbílnum........................allir muna eftir honum!

Takk fyrir að kommenta hjá mér. Guð veri með þér.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 14.6.2009 kl. 12:57

2 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Takk fyrir,Halldóra mín.og Guð blessi þig.

Jóhannes Guðnason, 14.6.2009 kl. 14:52

3 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Takk Takk,Vallý mín.

Jóhannes Guðnason, 15.6.2009 kl. 06:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Guðnason
Jóhannes Guðnason
Jóhannes Guðnason \ Fyrrverandi Fóðurbílstjóri.Konungur Þjóðvegana í dag.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 60880

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband