AÐ VERA FRÚ, SEM VINUR MINN VILL:??????

Ég á mjög góðan vin, sem er traustur og heiðarlegur, og er með góðan Húmor,hann hefur verið minn besti vinur og vinnufélagði og reynst mér mjög góður vinur, og væri ég ekki í þessari stöðum hér ef ég ætti hann ekki að sem vin, sama segir konan mín,(þá hlýtur það að vera satt,HA HA HA) en hann getur verið þrjóskasti maður í heimi ef því er að skipta, hann heitir Guðni Gýgjar, hann vinnur mikið og hefur lítið tíma fyrir sjálfan sig, ef hann er ekki að vinna, þá er hann að hjálpa öðrum, gera við bíla eða smíða einhváð, ég skaut því nú á hann að fá sér góða konu (hann elskar gömlu dansana, og dansar mjög vel) Hann sagðist ekki hafa tíma til þess að leita af konum??? enda þurfa þær að hafa mart til bruns að bera, ef hann ætti að hafa áhuga á þeim, Svo ég tek mig hér og nú þá ákvörðun að leita af rétt konu fyrir hann ( milli 50 og 65 ára) góður aldur fyrir hann, en allur aldur kemur nú til greina.HA HA HA heehe. Þar sem hann veit ekki af þessu, verða öll hans konuefni, að fara í gegnum mig, og þær verða að standast þau skilyrði sem hér eru fyrir neðan.

KONA: Hvernig á sú kona að vera sem karli skal til hæfis gera. Hún þarf að vera undur fríð og karli sínum ávalt blíð. Með matinn ávalt á réttum tíma og ekki stynja og hanga í síma. Skyrtan strokin inni í skáp og ekkert óþarfa búðarráp. Að baka, konan þarf að kunna og haga sér eins og nunna.Börn skal konan manni sínum ala og ekki yfir íþróttum að tala.Karlinum þarf hún sígfelt að hæla og á kvöldin við hann gæla. Konan skal halda vextinum fínum þó karlinn tapi sínum. Karlinn á að styðja í frama poti og ekki vekja úr fyllirísroti.Heimilið skal vera strokið og fínt svo karlinn geti það öðrum sýnt. Konan skal kunna að negla og saga svo ekki þurfi hún karlinn að plaga. Garðinn að hreinsa og bílinn að bóna og bursta af karli sínum skóna. Svo skal hún brosa og vera fín svo karlinum ekki glapist sýn. Ef hann rær á önnur mið skal konan kunna að halda frið. Þið vitið það eflaust allar nú að vandi er að vera FRÚ.  HA HA HA HAheheheheheheh  LoL  Grin  Smile  Cool

Eins og þið sjáið, verður þetta ekkert smá mál að finna góða konu, með þessa kosti, en þær eru til, og ég vil bara það besta fyrir minn góða vin. Ég mun taka þær konur í viðtal, áður en ég hleypi þeim að honum Guðna vini mínu, Og munið hann veit ekkert af þessu, svo þetta er trúnaðarmál ykkar og míns. Takið ykkur nú taki, konur góðar, áður en þið missið af þessum gæða manni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Æ, veistu.... ég nenni ekki að vera konan hans Guðna. 

Anna Einarsdóttir, 4.10.2007 kl. 20:25

2 Smámynd: Sigurður Axel Hannesson

Það er nú ekki á störf húsmæðra bætandi, þetta myndi keyra allt um koll.

Taktu frá einn koníakssnafs fyrir mig í kvöld, ég tek hann út á sunnudagskvöldið.

Sigurður Axel Hannesson, 5.10.2007 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Guðnason
Jóhannes Guðnason
Jóhannes Guðnason \ Fyrrverandi Fóðurbílstjóri.Konungur Þjóðvegana í dag.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 60879

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband